Rigningin er oftast góð
06. desember 2007 klukkan 11:32
Ég var minnt á það þegar fór að frysta hér um daginn, hvað mér finnst rigningin góð.
Var búin að gleyma hversu hrikalega kalt frostið er, hversu hálar göturnar eru, hversu illa húðin á mér fílar frostið og hvað hælaskórnir eru ónothæfir.
Nú hafa komið nokkrir frostdagar inn á milli og svo kemur rigningin og skolar frostinu í burtu. Ég lofaði mér að blóta aldrei regninu framar, því mér líkar það betur enn frostið.
Flestir þola ekki regnið hér af því að það kemur svo mikið af því. En annars er það ekki að gera neinum neitt, fellur bara í rólegheitum niður á jörðina og býr til polla, stundum flóð.
En eins og regnið er 90% av tímanum gott, þá var það í dag sem regnið varð vont. Það mígrignir, en það sem er verst er vindurinn. Hann gerir það að verkum að regnið ber mann í framan og leitar uppi hvern þurran blett sem finnandi er á manni. Pollarnir gera mér ekkert, ég á vatnshelda skó. Það að bíllinn syndi í gegn um göturnar gerir mér ekkert því ég keyri bara hægar.
Vindurinn gerir mér reyndar ekkert mikið heldur, því ég á svo frábæra hettu á úlpunni minni sem ver mig gegn árásum vindsins.
Annað hvort hafa regnið og vindurinn myndað bandalag gegn lifandi verum í Bergen, eða að vindurinn er að leika regnið jafn illum leik og okkur.
Ég held það sé síðarnefnt, því rigningin er góð.
Rosaleg helgi og loksins afslöppun
04. desember 2007 klukkan 11:19
Mér þykir fátt leiðinlegra en tóm neikvæðni. Samt virðist þessi tilfinning oft hellast yfir mig í próftíð.
En í dag er allt gott því í dag hef ég rúm til að anda njóta félagsskapar fjölskyldunnar minnar, áður en að næstu lestörn kemur. Í gær fengum við lyklana að íbúðinni okkar fallegu. Þá kom í ljós að baðkarið er ekkert venjulegt baðkar, heldur nuddbaðkar! Jibbííí!
Ég pantaði fyrsta baðið eftir að við flytjum
Ég átti eina rosalegustu helgi ársins og verð aðeins að segja ykkur frá henni.
Á föstudagsmorgun var yfirferðartími í stærðfræðinni sem entist til kl 13. Kl 12 hafði heimaprófið verið gefið út á netinu svo Mette byrjaði aðeins á því á meðan við vorum í tíma. Svo keyrði ég Hilde til Mette, en varð svo að skreppa eftir bílnum okkar.
Hann átti semsagt að vera klár á fimmtudeginum, en því frestaðist til föstudags. Og ekki kan Krissi keyra með tvöfalda sjón. Svo ég ætlaði að bruna eftir bílnum. En það var náttúrulega föstudagstraffík svo ég var hálftíma að koma mér niður eftir. Svo varð ég að fylla bílin sem við vorum með af bensíni áður en ég gat skilað honum.
Ég var voða stressuð, sem kannski útskýrir að ég gerði bara eins og ég hélt að pumpusystemið var að segja mér. Svo ég setti kortið í sjálfssalan sem spýtti því út og sagði mér að kortinu væri lokað.
Ég gekk inn á bensínstöðina alveg mega hressa; hei það er eitthvað að þessu trasli þarna úti, vélin segir að kortið mitt sé lokað!
Hann tók við kortinu til að láta mig borga, en fékk sömu skilaboð..... Vúps! Ég vissi alveg að þetta væru bara mistök einhvers staðar, en þetta var ekkert minna óþægilegt fyrir það. ÉG hringdi fram og til baka í bankanum og bað þá um að redda þessu svo ég gæti borgað bensínið og komið mér heim í heimaprófið. Þau völdu að henda bara pening inn á sem yfirdráttarheimild þar til þau fengu tíma til að sjá hvað hefði komið fyrir allan peningin á kortinu. Klukkan var nefnilega alveg að verða þrjú.
Svo losaði ég mig loks við bílin og keyrði heim. það tók 45 mín út af traffík. ég var komin 3 tímum síðar en áætlað var heim til Mette til að læra. Svo við lærðum til kl 02.00. Mættum ferskar aftur kl 08.00 og unnum til ca 01.00.
Kl fjögur þann dag gerði krissi þá uppgötvun að peningaveskið hans hafði orðið eftir í bílnum sem e´g var að skila!! Og það var ´buið að loka hjá þeim.
Lítið við því að gera annað en að heyra í þeim á mánudaginn.
Sunnudagurinn var alveg eins og laugardagurinn, við vorum búnar kl hálf eitt. Mánudaginn vaknaði ég svo klukkan 7, lærði fyrir næsta próf í klst og fór svo og skilaði heimaprófinu, lærði í 2 klst í viðbót og svo keyrðum við af stað í próf númer 2.
Semsagt 3 klst lærdómur. En það gekk held ég ágætlega engu að síður svo ég er bara himinlifandi með að þessi helgi sé að baki :D
Þetta var allt í bili :D

neikvæðni og pirringur í hávegum höfð
29. nóvember 2007 klukkan 12:04
Hér sit ég, daginn fyrir próf, og hlusta á með öllu ónothæfan kennaran tala um hluti sem hann hefði átt að taka í síðasta tíma. Í dag átti að vera yfirferð fyrir próf, þar sem við tökum gróft á efni bókarinnar og spyrjum spurninga um eitthvað sem við erum óörugg um.
Fyrstu 45 mínúturnar fóru í hópavinnu!!! DAginn fyrir próf?!?! Datt hann á hausinn?
Nú eru bráðum aðrar 45 mínútur liðnar og hann er að teikna upp alls skyns módel á töfluna, búin að koma upp með allskyns nýjar glósur á ensku (eitthvað sem við erum að sjá i fyrsta sinn og kemur í raun engu við) og ákvað síðan að lesa aðeins fyrir okkur svarið á einu verkefni frá í fyrra....
Er þessi maður eitthvað þroskaheftur!?!??
Nú er ég svo pirruð að það sýður á mér. Ég hætti snemma að mæta í þessa tíma því hann er ónýtasti kennari sem ég hef haft í allri minni skólagöngu! En ég hélt að maðurinn ætti nú að geta haft eðlilega yfirferð dagin fyrir próf...
Svo í þokkabót er þetta maðurinn sem er að kenna okkur motivation, adaptation og management style í fyrirtækjum! Og hann kann ekki einu sinn i að halda strúktúr í einu aumu fagi!
Ég sagði honum skýrt hvað mér fannst um þessu blessuðu "yfirferð" hans. Hann varð fúll. Mér er skítsama. Ég stend upp og fer í næstu pásu, svona vitleysu læt ég ekki bjóða mér.
Hugsa að ég fari fram á endurgreitt 1/10 af þessum 500 þúsund krónum sem ég borga á ári (fyrir tíu fög semsagt).
En eitt má fíflið eiga, hann ELSKAR að nota liti á töfluna.

kúkalabbaleiðindapróflestur
25. nóvember 2007 klukkan 16:15
oj,oj,oj,oj,oj!
Ég segi það aftur, oj,oj,oj,oj,oj! OJ!
Dagin sem ég les til síðasta próf lífs míns verður gerður að helgidegi og ég mun alla ævi neita að mæta til vinnu á þeim degi! Það verður svona eins og þjóðhátíðardagurinn. Merkilegra en það! Merkilegra en jól, afmælið mitt, páskarnir (sem mér finnst ekkert merkilegir, fæ ekki einu sinni páskafrí lengur) og allir hinir frídagarnir!
Ég er að læra í ensku, sem er létt, og þar með leiðinlegt og fær mig til að finnast ég vera að eyða tíma í einhverja bölvaða vitleysu, þar sem ég gæti vel hugsað mér að eyða tíma í önnur fög þar sem ég er ekki eins vel stödd. En að sama skapi vill maður náttúrulega fá bestu einkunn í fagi sem maður kann, og ef ég myndi nú læra í til dæmis microökonomi í stað ensku þá gæti ég átt það á hættu að hafa gleymt öllu um bissnesskúltúrinn hjá þessum 7 umræddu löndum í enskunni, og að auki gleymt hvernig takast á við siðferðisklemmur í viðskiptum.
Svo ég verð að hunskast inn í eldhús aftur og hætta þessu væli.
Ef ég fæ ekki A þá fer ég að grenja!
Skítafýluvæluskjóðukveðjur.

Blindi karlinn
22. nóvember 2007 klukkan 09:25
Krissi minn kemur heim í dag. Hann er hálf blindur, eða sér tvöfalt, eftir áreksturinn í leiknum í gær. Hlakka til að fá hann heim og kyssa á bágtið 
Prófin færast sífelt nær og á sama tíma færist innflutningur í nýju íbúðina enn nær.
Ég er óttalega lúin þessa dagana og sofna samt mjög löngu eftir að ég kem upp í rúm. Það er vítahringur.
Lá og velti mér í rúminu til c.a. hálf 3 í nótt, þurfti svo á fætur kl 6.40, það var ekki gaman.
Annars hefur það virkað best fyrir mig að líta aldrei á klukkuna þegar ég get ekki sofnað, því ef ég veit ekki hvað klukkan er þá get ég logið þvi að sjálfri mér að hún sé mikið minna en hún í raun og veru er, hence; ég vakna minna þreytt af því ég held ég hafi sofið lengur en ég gerði.
Ég læt þetta nægja í bili, er í síðasta tíma í finans og investering - better pay attention!

Já hemmi minn!
21. nóvember 2007 klukkan 22:36
Hér get ég hugsað mér að setjast að... Þetta er allt annað líf!
I love changes, og þær eru að gerast allt í kring um mig.
Nú er ég reyndar að ljúga, hef alltaf hatað breytingar. Eða allavega þær sem eru ákveðnar af einhverjum öðrum en mér. Svona eins og þegar yfirmaðurinn minn hættir... það fíla ég ekki. Eða þegar grunnskólinn minn ákvað að gera breytingar eftir að ég var komin í framhaldsskóla. Eða þegar mamma kom heim einn daginn með þær fréttir að við værum að flytja úr melasíðunni í höfðahlíðina.
En ég ræð flestum breytingunum núna svo þetta er geggjað! Ný íbúð og allt! Ha?
Snakkes